Sjónvarpsstöðin Hringbraut er eins árs í dag, en hún fór fyrst í loftið 18. febrúar á síðasta ári og hefur allt þetta heila ár lagt áherslu á að framleiða upplýsandi og fræðandi sjónvarpsþætti sem endurspegla samfélagsumræðu líðandi stundar.
Á þessu eina ári hafa gestir sjónvarpsstöðvarinnar verið alls 1428 og skiptast þannig að 710 konur hafa birst í þáttum stöðvarinnar, en 716 karlar.
\"Þetta hefur verið mikið og skemmtilegt ævintýri,\" segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, sjónvarpsstjóri sem stýrt hefur dagskrá Hringbrautar og ritstýrt efni samnefns frétta- og upplýsingavefjar \"en það sagði enginn að þetta ætti að vera auðvelt í því mikla samkeppnisumhverfi sem fjölmiðlarekstur er á Íslandi þar sem einn stór miðill er á fjárlögum og aukafjárlögum á meðan hinir verða einvörðungu að reiða sig á fólk og fyrirtæki landsins.\"
Sigmundur Ernir kveðst þó bjartsýnn á framtíð stöðvarinnar og segir allt benda til þess að hún sé komin til að vera í íslenskri fjölmiðlaflóru: \"Viðtökurnar hafa í reynd verið framar vonum. Við finnum mikinn hlýhug hjá fólki hringinn í kringum landið - og virðumst hafa náð að mynda gott og uppbyggilegt samtal á milli þáttanna okkar og fólksins í landinu með því að tefla fram trúverðugum viðmælendum og þrautreyndum þáttastjórnendum.\"
Hringbraut framleiðir nú að jafnaði 15 innlenda sjónvarpsþætti á viku, en rekur að auki fjórþættan vefmiðil með fréttum, lífstílsefni, pistlum og gátt sem sýnir sjónvarpsefni stöðvarinnar - og nú nýlega hófst útvarpsrekstur Hringbrautar á tíðninni 89,1 þar sem vaskir útvarpsmenn á borð við Eyjólf Kristjánsson, Krissa Aðalsteins og Þórarinn Þórarinsson halda úti metnaðarfullri dagskrá, en von er á fleiri þáttastjórnendum í útvarpinu á næstu vikum.
\"Við miðlum af reynslu - og ætlum að halda því áfram,\" segir sjónvarpsstjórinn á eins árs afmælinu.