Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins hefur látið af störfum að eigin ósk. Hann tengist tveimur aflandsfélögum í Panama sem greint var frá í Kastljósi í fyrradag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sameinaða lífeyrissjóðnum.
\"Í fjölmiðlaumræðu síðustu daga um svokölluð Panamaskjöl hefur nafn Kristjáns Arnar Sigurðssonar framkvæmdastjóra Sameinaða lífeyrissjóðsins tengst tveimur aflandsfélögum. Vegna þessa hefur Kristján Örn nú látið af störfum hjá sjóðnum að eigin ósk. Ólafur Haukur Jónsson forstöðumaður rekstrarsviðs Sameinaða lífeyrissjóðsins mun gegna störfum framkvæmdastjóra tímabundið þar til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn,\" segir á vef sjóðsins.
Kristján Örn segir sjálfur um eigin afsögn: \"Í ljósi umræðu um mig og þeirrar staðreyndar að nafn mitt er að finna í Panamaskjölunum vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Ég hef ávallt gætt þess í mínum störfum að starfa af heilindum og fara að lögum og reglum. Ég tel mikilvægt vegna þessarar umræðu um mig að Sameinaða lífeyrissjóðurinn verði ekki fyrir skaða. Ég hef því tilkynnt stjórn sjóðsins að ég óski lausnar frá störfum í þeirri von að sátt megi skapast um sjóðinn og starfsemi hans. Ég hef starfað í 19 ár hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum þar sem ég hef eignast marga góða vini og ég vil þakka öllu þessu góða fólki fyrir gott samstarf í gegnum öll þessi ár.\"
Kristján er annar tveggja forstjóra lífeyrissjóða sem hafa vikið vegna Panamaskjalanna, tveir borgarfulltrúar eru úr sögunni, forsætisráðherra er hættur, gjaldkeri Samfylkingar hefur sagt af sér embætti sem og í stjórn Kjarnans og ákall er inni í Framsóknarflokknum um að Hrólfur Ölvisson framkvæmdastjóri flokksins víki næst vegna aðildar hans að félögum í aflandsskjóli skv. Panamaskjölunum.
Tveir ráðherrar tengdir aflandsmálum sitja enn, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Ólöf Nordal innanríkisráðherra.
Alls hafa því ekki færri en sex æðstu stjórnendur og stjórnmálamenn sagt af sér vegna Panamalekans, Gögnin um Ísland hefur Reykjavík Medía þaulskoðað í félagi við 400 blaðamenn víða um heim. Fram hefur komið að Kastljós, Stundin og Kjarninn hafa einnig fengið gögn til að vinna fréttir úr frá RM.
Eftir því sem fram kom hjá Aðalsteini Kjartanssyni hjá Reykjavík Medía í gær í Þjóðbrautarþætti Sigurjóns Magnúsar Egilssonar ritstjóra Hringbrautar í gærkvöld er von á fleiri fréttum bráðlega. Alls eru 600 Íslendingar í skjölunum og margir þeirra þjóðþekktir í ábyrgðarstöðum. -BÞ