Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur og forsetaframbjóðandi segir að nú stefni jafnvel í sögulegustu forsetakosningar allra tíma. Framboð Davíðs Oddssonar sé stak í því mengi.
Þetta kom fram í viðtali í beinni sjónvarpsútsendingu á Hringbraut í morgun við Guðna á Þjóðbraut undir stjórn Sigurjóns M. Egilssonar.
Sigurjón spurði Guðna út í mat sagnfræðingsins á bestu forsetum íslenska lýðveldisins og nefndi hann Vigdísi Finnbogadóttur og Kristján Eldjárn.
Þá sagðist Guðni vilja beita sér fyrir breytingum stjórnarskrá í þá veru að tiltekinn fjöldi kjósenda gæti á hverjum tíma krafist þjóðaratkvæðis í stað þess að einvaldur á Bessastöðum réði sjálfur hvenær skyldi virkja vilja þjóðar og hvenær ekki.