Hreyfill í boeing-757 á 1,3-1,6 milljarðar kr.

Viðhaldsstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli liggur með þotuhreyfla á lager fyrir vélar Icelandair en einn slíkur koastar á bilinu 1,3-1,6 milljarða að sögn Jens Þórðarsonar framkvæmdastjóra ITS.  Þetta kemur fram í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld.  Í þættinum mun Jens útskýra starfsemi viðhaldsstöðvarinnar sem hóf starfsemi á Keflavíkurflugvelli árið 1993 og er ávallt fullbókuð af þotum sem koma til skoðunar og eftirlits.  Verið er að stækka viðhaldsstöðina um tæplega helming og stefnt er að því að geta hýst 5 þotur samtímis.  Starfsmenn ITS eru 430 um þessar mundir og fer fjölgandi í samræmi við aukin umsvif Icelandair.  Þáttastjórnandi er sem fyrr Sigurður K. Kolbeinsson og Friðþjófur Helgason annaðist myndatökur.