Hressilegur jólaþáttur hjá jóni g. eftirlætistími kaupmannsins verður um helgina

Hressilegur jólaþáttur hjá Jóni G. á Hringbraut. Gestir hans eru Magnea Þórey Hjámarsdóttir, frkvstj. Icelandair hótela, Gunnar Egill Sigurðsson, frkvstj. verslunarsviðs Samkaupa, Guðrún Jóhannesdóttir, kaupmaður í Kokku við Laugaveg og Egill Örn Jóhannsson, frkvstj. Forlagsins. Jólaverslunin og spjall um verslun og viðskipti núna á aðventunni. Kl. 20:30 í kvöld og á tveggja tíma fresti eftir það næsta sólarhringinn.

Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair hótela, segir að bókanir í janúar og febrúar á hótelum fyrirtækisins á landsbyggðinni séu meiri en í fyrra. Þá verður sneisafullt á veitingastöðum hótelanna í skötunni á þorláksmessu og fjöldi útlendinga bókaðir á Icelandair hótelunum um áramótin.

Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa, hefur eins og aðrir kaupmenn í nógu að snúast á aðventunni. Samkaup eru með 60 verslanir úti um allt land undir mismunandi vörumerkjum, eins og Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Kjörbúðin, SamkaupsStrax og Iceland. „Starfsfólk okkar á landsbyggðinni vann þrekvirki í óveðrinu og rafmagnsleysinu um daginn,“ segir Gunnar Egill meðal annars í þættinum.

Guðrún Jóhannesdóttir, kaupamaður í Kokku við Laugaveginn. Verslunin tvöfaldaðist að rými um síðustu mánaðamót og mikill fjöldi sækir verslunina heima á aðventunni. „Jólaverslunin hjá okkur byrjar yfirleitt um miðjan nóvember.“

Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, er bókaútgefandi líkt og faðir hans, Jóhann Valdimarsson og afi, Valdimar Jóhannsson, sem stofnaði Iðunni árið 1945. Forlagið er með um 25% af bókamarkaðnum og er með höfunda eins og Arnald Indriðason og Andra Snæ Magnason á sínum snærum. Þessi þriðju kynslóðar-bókaútgefandi, sem ásamt föður sínum hefur verið útnefndur maðuar ársins í atvinnulífinu, ætlaði sér hins vegar aldrei í bókaútgáfu.