Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins var afdráttarlaus í samtali við Pál Magnússon á Þjóðbraut í gærkvöld þegar talið barst að loforðum allra forystumanna flokksins fyrir síðustu kosningar um aðkomu þjóðarinnar að framvindu ESB-aðildar. "Hrein svik," sagði Þorsteinn um gjörðir Bjarna Benediktssonar og annarra oddvita flokksins sem gáfu skýr loforð í aðdraganda kosninganna, en svíkja þau nú svo eftir er tekið. Með þessum orðum tekur Þorsteinn Pálsson undir orð Ragnheiðar Ríkharðsdóttur þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins á Þjóðbraut í síðasta mánuði þar sem hún sagði að ef Sjálfstæðisflokkurinn stæði ekki við þessi orð sín fyrir kosningar, sem nú er komið á daginn, þá væru það svik að hálfu flokksforystunnar - og hún bætti því við að heiðvirðir sjálfstæðismenn ættu því ekki að venjast að menn innan hans gengju á bak orða sinna. Annar forystumaður Sjálfstæðisflokksins frá fyrri tíð, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir atburði gærdagsins minna sig á kjarkleysi: "Þorir ríkisstjórnin ekki með sinn trausta þingmeirihluta að fara með ESB-málið fyrir Utanríkismálanefnd og Alþingi Íslendinga," spyr hún undrandi.
Ljóst er að þessi "hreinu svik" forkólfa Sjálfstæðisflokksins munu hafa eftirmál innan flokksins, en þá ekki síður innan Alþingis, sem stjórnarandstaðan virðist vera sammála um að hafi verið rænt völdum og fullveldi þess niðurlægt. Boðað hefur verið til fundar þingflokksformanna í dag og krefst stjórnarandstaðan að þingfundur verði boðaður þegar í dag.