Hreiðar már og magnús enn dæmdir

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur dæmdi í dag Hreiðar Már Sig­urðsson, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaupþings í sex mánaða fang­els og, Magnús Guðmunds­son, fyrr­um banka­stjóra Kaupþings í Lúx­em­borg í dæmd­ur í 18 mánaða fang­elsi í Marple-málinu svokallaða.

Skúli Þor­valds­son, sem einnig tengdist sama máli, var dæmd­ur í sex mánuði, en Guðný Arna Sveins­dótt­ir, fyrr­um fjár­mála­stjóri bank­ans var sýknuð af öll­um ákær­um.

Ákæru­efnið er í sem fæstum orðum tvær milli­færsl­ur frá Kaupþingi til Kaupþings í Lúx­em­borg sem fóru áfram til fé­lags­ins Marple í Lúx­em­borg á ár­un­um 2007 og 2008. Sak­sókn­ari tel­ur að um fjár­drátt og umboðssvik sé þar að ræða.

Í mál­inu voru Hreiðar Már Sig­urðsson, fyrr­um for­stjóri í Kaupþingi og Guðný Arna Sveins­dótt­ir, fyrr­um fjár­mála­stjóri bank­ans, ákærð fyr­ir fjár­drátt og umboðssvik. Magnús Guðmunds­son, fyrr­um for­stjóri Kaupþings í Lúx­em­borg var aft­ur á móti ákærður fyr­ir hlut­deild í sömu brot­um, og fjár­fest­ir­inn Skúli Þor­valds­son ákærður fyr­ir hylm­ingu og pen­ingaþvott. All­ir verj­end­ur, nema verj­andi Marple, voru viðstadd­ir dóms­upp­kvaðning­una, en eng­inn ákærðu mættu.