Hreiðar már enn á sakamannabekk

Aðalmeðferð í svokölluðu Marple-máli hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, en ákæran í málinu grundvallast milljarða króna millifærslum frá Kaupþingi til Marple Holdings í Lúxemborg og kaupum bankans á skuldabréfum í því fyrirtæki.

Þetta er í þriðja sinn sem fyrrverandi stjórnendur Kaupþings eru á sakamannabekk, en tveir hinna ákærðu, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, sitja nú í fangelsi fyrir Al Thani-málið. Þá hlaut Hreiðar Már einnig dóm í héraði í markaðsmisnotkunarmálinu svokallaða fyrr á árinu.

Sérstakur saksóknari ákærði fjóra í Marple-málinu, þau Hreiðar Má, Magnús, Guðnýju Örnu Sveinsdóttur, fyrrverandi fjármálastjóra bankans og Skúla Þorvaldsson, eiganda félagsins Marple Holding og einn af stærstu viðskiptavinum Kaupþings fyrir hrun. Fjórmenningarnir eru ýmist ákærðir fyrir fjárdrátt, hlutdeild í fjárdrætti eða hylmingu. 

Allir hinna ákærðu mættu fyrir dóm í morgun. Í dag er áætlað að þrír sakborninga gefi skýrslu í málinu, þau Guðný, Hreiðar og Magnús. Áætlað er að aðalmeðferðin standi fram í næstu viku.