Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í gær Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings á Íslandi, fyrir innherjarsvik í síðasta hrunmálinu sem ákært er í. Þetta segir í frétt Rúv sem lesa má hér.
Heiðar fær ekki refsingu vegna þeirra refsinga sem hann hefur sætt á undanförum árum sem tengjast starfi hans sem forstjóri Kaupþings banka.
Dómurinn telur að Hreiðar Már hafi „blekkt aðra á hinum skipulagða verðbréfamarkaði.“
Í frétt Rúv segir orðrétt: Þetta var síðasta hrunmálið sem ákært var fyrir og fimmta sakamálið gegn Hreiðari en hann hefur samtals hlotið sjö ára fangelsisdóma. Það snerist meðal annars um lánveitingu Kaupþings til eignarhaldsfélags í eigu Hreiðars upp á rúman hálfa milljarð sem félagið notaði til að kaupa bréf af Hreiðari sjálfum á markaðsvirði í ágúst 2008.