Hreiðar, magnús og sigurður sýknaðir

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun þá Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg og Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings, af ákæru í CLN-málinu svokallaða.

Þremnningarnir, sem allir afplána fyrri dóma vegna hrunmála á Kvíabryggju, voru í þessu tilviki ákærðir fyrir umboðssvik, en þeir voru vændir um að hafa misnotað aðstöðu sína sem stjórnendur Kaupþings í lánveitingum til nokkurra eignarhaldsfélaga sem voru í eigu vildarviðskiptavina bankans.

Um verulegar fjárhæðir var að tefla, en lánin sem voru veitt á þriggja mánaða tímabili fram í október 2008 námu alls 510 milljónum evra. Þau voru notuð til að kaupa lánshæfistengd skuldabréf sem tengd voru skuldatryggingarálagi Kaupþings. Fyrir dómi var því haldið fram að markmið kaupanna hafi verið að lækka skuldatryggingarálag bankans.

Samkvæmt dómnum í morgun fellur allur málskostnaður á ríkissjóð.