Hrefna varar íslendinga við: segist hafa tapað 100.000 krónum eftir svik á spáni

Hrefna Kristmannsdóttir sem er prófessor við Háskólann á Akureyri, segist hafa lent í svikahröppum á Spáni. Hrefna skrifar pistil í Morgunblaðið og vill með honum vara aðra Íslendinga við. Hrefna segir:

„Við fjölskyldan lentum í fremur leiðinlegu fjársvikamáli af hálfu bílaleigu á Spáni og viljum því vara fólk við að eiga viðskipti við viðkomandi fyrirtæki.“

Hrefna leigði ökutæki af bílaleigunni Rhodium, en fyrirtækið er undirfyrirtæki Goldcar sem er afar vinsæl bílaleiga á Spáni en bílaleigan sjálf er staðsett á Íslendingaslóðum í Alicante. Hrefna segir að bíllinn sem þeim var úthlutað hafi litið illa út og á honum hafi verið að finna 18 áberandi rispur.

 „Þegar við tókum bílinn upplifðum við mikla pressu og jafnvel hótanir til að kaupa viðbótartryggingu þó við værum með fullkomnar tryggingar fyrir, en við létum ekki undan því,“ segir Hrefna og bætir við á öðrum stað: „Eftir á að hyggja hefðum við átt að neita að taka við bíl sem var svona mikið rispaður og skemmdur.“

Hrefna bætir við: „Það er auðvelt að vera vitur eftir á! Við lentum ekki í neinum óhöppum í dvölinni á Spáni og þar vorum við með bílinn í aflokuðu einkastæði allan tímann nema á keyrslu til og frá flugvelli. Því var ekki möguleiki á neinum rispum frá öðrum bílum í bílastæðum. Þegar við skiluðum bílnum sögðu þeir hjá bílaleigunni að allt væri í lagi og við treystum því, en gættum þess ekki að fá það skriflegt enda verulega tímabundin. Við hefðum líka átt að taka myndir en bíllinn var í mjög illaupplýstri bílageymslu og lítið hefði sést á þeim. Bíllinn var líka verulega skemmdur fyrir og erfitt að sjá hugsanlegar viðbætur á rispum og dældum. Tveimur dögum eftir að við skiluðum bílnum kom krafa um nær 100 þ. kr. í viðgerðarkostnað vegna upploginna skemmda. Myndir sem fylgdu kröfunni voru m.a. af stórri rispu sem var á bílnum þegar við tókum við honum.“

Þá segir Hrefna:

„Aðrar myndir sem eiga að vera af nýjum rispum eru teknar svo nálægt að það er með engum hætti hægt að greina hvar á bílnum er verið að mynda, eða hvort myndirnar eru yfirhöfuð af þessum bíl. Ein myndin er svo óskýr að það sem er á myndinni er meira eins og skítur en skemmd. Bíllinn var reyndar svo rispaður fyrir að erfitt hefði verið að sjá einhverja viðbót. Einnig er nokkuð undarlegt að borga eigi fyrir dýra viðgerð á bíl sem þeir greinilega ætla ekki að gera við (hafa ekki gert það hingað til) og verðið er algjörlega ákveðið af þeim.“

Hrefna mótmælti kröfunni bæði bílaleigunnar og Goldcar.

„Við kvörtuðum líka til Do-hop, sem harmaði atvikið en taldi sig ekki geta hætt viðskiptum við Gold-car þar sem þeir væru miðlarar fyrir annað fyrirtæki sem réði hvaða bílaleigur væru inni í tilboðum. Málið er nú í höndum banka og tryggingarfélaga sem vonandi geta með aðstoð lögreglu stöðvað ólöglega starfsemi þessa fyrirtækja.“

Þá segir Hrefna:

„Við viljum allavega hvetja aðra ferðalanga til að vera á varðbergi.“