Hraustlegt frost í kortunum

Það er blámi í veðurkortunum og eins gott að hafa sköfuna til taks í dag og næstu daga eigi menn að sjá út um bílrúðurnar um mest allt land. Norðaustlægar átti eru ríkjandi næstu daga.

Búast má við dálitlum éljum austan til í dag, en annars verður léttskýjað að mestu í kuldanum sem ríkir nú á norðurhveli. Hitastigið verður frá frostmarki að átta gráðu frosti og þessu veðurlagi fylgir nokkurt hvassviðri um suðaustanvert landið.  

Á morgun má svo búast við hægt vaxandi suðaustan með súld eða rigningu, fyrst sunnantil og hlýnar þá í veðri, en útlit er fyrir að allt að 10 stiga hiti verði syðstr á landinu þegar líður nær helgi. Því veðrinu fylgir að vísu rigning í nokkuð stífri austanátt, en hægara verður og bjartviðri verður fyrir norðan um næstu helgi.