Hrannar Pétursson mun klukkan 11 í dag tilkynna formlega um framboð sitt til forseta Íslands og hefur boðað fréttamenn til fundar að heimili sínu i tilefni þess.
Skarpur á Húsavík sagði fyrst frá því að Hrannar, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Vodafone, væri að íhuga forsetaframboð. Hann gegndi um skeið stöðu fréttamanns hjá Rúv, rekur eigið upplýsinga- og samskiptafyrirtæki og starfaði sem verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu þar til í október síðastliðnum. Mbl.is hefur greint frá því að búið sé að stofna félagið Forsetaframboð Hrannars á heimili Hrannars.
Davíð Þór radíusbróðir fyrrverandi og prestur er einnig að skoða forsetaframboð alvarlega og stefnir í metfjölda frambjóðanda, á annan tug Íslendinga.
Hringbraut hefur heimildir fyrir því að Bryndís Hlöðversdóttir muni á næstu dögum tilkynna eigið forsetaframboð.