Hrannar Pétursson forsetaframbjóðandi segist hafa sett sig inn í aðstæður Ólafs Ragnars Grímssonar þegar hann þurfti að taka ákvörðun um heimild til þingrofs eða synjun eftir að Sigmundur Davíð fór fram á það. Hann segir að forsetinn hafi tekið rétta ákvörðun en blaðamannfundurinn sem hann hélt hafi verið mistök. Atburðir síðustu viku sýna að forseti Íslands gegnii mikilvægu hlutverki í stjórnskipan Íslands. Þeir sýni að forsetaembættið sé ekki tildurembætti og það skipti máli hver gegnir því. Þessa skoðun setur Hrannar fram í grein á visir.is.
\"Líkt og margir aðrir fylgdist ég náið með atburðunum sem urðu til þess að forsætisráðherra sagði af sér og ný ríkisstjórn var mynduð. Sem frambjóðandi til embættis forseta Íslands mátaði ég sjálfan mig í aðstæðurnar og hugleiddi hvernig ég hefði brugðist við í sporum forsetans,\" segir Hrannar.
\"Málavextir og aðstæður í liðinni viku voru óvenjulegar. Aðdragandi Bessastaðaheimsóknar forsætisráðherra var óvenjulegur og svo virtist sem förin væri farin án samráðs við aðra. Samkvæmt forsetanum óskaði ráðherrann eftir heimild til að rjúfa þing og boða til kosninga, sem forsetinn hafnaði. Slíkt er óvenjulegt líkt og skyndifundur forseta með blaðamönnum að loknum fundi með forystumanni ríkisstjórnar.
Hafi forsetinn talið ráðherra umboðslausan er ákvörðun hans skiljanleg. Ef undirrituð þingrofsheimild átti að vera verkfæri í pólitískum átökum gerði forsetinn rétt. Það var eðlilegt að hann kannaði afstöðu annarra til þingrofs og sá yfirlýsti vilji hans, að halda forsetaembættinu fyrir utan pólitískar deilur, er skiljanlegur. Forsetinn fór hins vegar út af sporinu þegar hann stillti sér upp gegnt blaðamönnum til að ræða málið þegar ýmis efnisatriði og framvinda var óljós. Það var hvorki skynsamlegt né nauðsynlegt, jafnvel þótt ráðherrann hefði á leiðinni til Bessastaða stuðað forsetann með stöðufærslu á Facebook. Forsetinn á ekki að standa í opinberu orðaskaki við nokkurn mann og með skyndifundi sínum með heimspressunni olli hann meira umróti en annars hefði orðið,\" skrifar Hrannar.
\"Það er ekki hlutverk forsetans að uppfylla einstaka hagsmunatengdar óskir, hvorki sínar eigin né annarra. Hann á að veita Alþingi og ríkisstjórn aðhald og stuðla í leiðinni að samfélagslegu jafnvægi. Slíkt útheimtir bæði kjark til að taka ákvarðanir og styrk til að standast freistingar. Á hvoru tveggja reyndi í liðinni viku, þar sem sitjandi forseti stóðst annað prófið en féll á hinu.\"
Grein Hrannars má lesa í heild hér.