Hrannar aðstoðarmaður ráðherra

Hrannar Pétursson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður utanríkisráðherra, Lilju Alfreðsdóttur. Hrannar hóf störf í dag, 4. maí.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Aðeins nokkrir dagar eru liðnir síðan Hrannar hætti framboð sem hann hafði tilkynnt til embættis forseta Íslands. Hann hafði látið vinna heimasíðu fyrir framboðið en sagði í yfirlýsingu að ástæða þess að hann hætti við væri framboð Ólafs Ragnars.

Hrannar er 42 ára og með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu. Hann
 er félagsfræðingur að mennt.