Hranalegar konur af Landspítalanum halda vöku fyrir Þórdísi

Rithöfundurinn Þórdís Gísladóttir, þarf nú að hafa slökkt á farsímanum sínum á næturnar til að losna við hranalegar konur af Landspítalanum sem eru stöðugt að slá á til hennar á morgnanna.

Þórdís greinir frá þessari reynslu á Twitter og af lýsingum af dæma hafa hringingarnar þann tilgang að kalla hana á vakt, eða skamma hana fyrir að hafa sofið yfir sig, en þess ber að geta að Þórdís starfar alls ekki á spítalanum.

„Óvart er númerið mitt ranglega á einhverjum vaktaskemum á Landspítala og ég slekk þess vegna alltaf á símanum á næturnar til að það hringi ekki hranalegar konur í mig eldsnemma og segi mér að mæta á vakt,“ segir Þórdís á Twitter.

Þótt hún sjálf telji að númerið hennar sé á vaktaplani starfsmanna spítalans, telja aðrir að hér sé alls ekki um mistök að ræða. Í athugasemd við færslu hennar er bent á að þetta kunni einnig að vera ný leið Landspítalans í erfiðri stöðu:

„Það er ekki ranglega. Þetta er partur að nýrri þegnskyldu sem var sett á til að koma spítalanum í gegnum covid-skaflinn.“