Hrafn Jökulsson berst nú upp á líf og dauða við æxli í hálsi og á sama tíma við íslenska ríkið sem hann stefnir fyrir harkalega frelsissviptingu og læknamistök.
Hrafn opnaði sig í einlægu viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins. Þar ræðir hann meðal annars um veikindi sín, frelsissviptinguna og læknamistökin sem eru líkleg til að kosta hann lífið.
Hrafn segir forréttindi að fá að takast bæði á við íslenska ríkisvaldið og Surtlu sína, sem er æxlið í hálsi hans, samtímis.
„Ég er í engum vafa um hvernig viðureign mín við íslenska ríkið fer en ég hef ekki hugmynd um hvort ég lifi sjálfur að sjá réttlætinu fullnægt. En sá dagur mun koma,“ segir Hrafn.
Hrafn segist ekki vita hver staðan á æxlinu Surtlu sé núna. „Læknir í Fossvogi sem ég fékk til að tala mannamál, taldi að þetta væri „game over" á nokkrum vikum – með fyrirvara um kraftaverk,“ segir Hrafn, en ljóst er að Surtla hefur haft nokkur ár til að koma sér fyrir.
Í ljósi þessa segist Hrafn hafa strax farið að vinna eftir því sem hann kallar sex vikna planið og hann hafi áttað sig á því að hann gæti eingöngu verið fúll í kortér. Hrafn segist hafa fundið skýringu á hvað hafði ýtt honum út í djúpa sjálfsskoðun sem hófst í heimsfaraldrinum.
„Þetta gaf mér skýringar á af hverju ég hafði verið í þessu. Það var bara Surtla að knýja mig uppgjörs svo ég væri búinn að ganga í gegnum það þegar á hólminn væri komið. Og nú er ég hérna,“ segir Hrafn.
Viðtalið við Hrafn má lesa í heild sinni á vef Fréttablaðsins.