Kvikmyndaleikstjórinn Hrafn Gunnlaugsson fær ekki að innlima í lóð sína skika undir svokölluðum hörgi nærri íbúðarhúsi hans í Laugarnesi, að því er fram kemur á fréttavefnum visir.is í dag.
Þar segir að Hrafn hafi senti umsókn um miðjan janúar til Reykjavíkurborgar um að fá að stækka lóð sína á Laugarnestanga 65. Sagði hann það vera vegna hörgs „sem merktur var ásum og vönum þann 1. júní 2015 af Hilmari Erni Hilmarssyni allsherjargoða“. Hörgur er blótstaður heiðinna manna.
Ekki náðist í Hrafn en í umsókn hans kemur fram að hörgurinn skarti líkneski af ásnum Frey. „Allsherjargoðinn hefur síðan framkvæmt þar ýmsar helgar athafnir ásatrúar,“ upplýsir leikstjórinn.
Hrafn fær ekki að stækka lóð sína
Fleiri fréttir
Nýjast