\"Það er erfitt að spá fyrir um það hversu margir þyrftu að skrifa undir kröfuna um endurreisn heilbrigðiskerfisins til þess að það hreyfði við þeim mönnum sem stjórna landinu,\" skrifar Kári Stefánsson á fésbók sína vegna undirskriftarsöfnunar sinnar um betra heilbrigðiskerfi.
\"Það er hins vegar staðreynd að þeir hafa agnúast út í undirskriftarsöfnunina og reynt að grafa undan trúverðugleika hennar á ýmsan máta,\" skrifar hann áfram og brýnir þjóð sína: \"Því finnst mér líklegt að það þurfi töluvert fleiri en þau sextíu þúsund sem þetta virðist ætla að enda í án þess að til komi einhvers konar endurlífgun. Sextíuþúsund manns er myndarlegur hópur en nægir varla til þess að skjóta stjórnarherrunum skelk í bringu en hræðsla er sú tilfinning sem er líklegust til þess að hvetja stjórnmálamenn til dáða,\" skrifar Kári.
\"Það er því ljóst að ef söfnunin á að ná því markmiði að leiða til endurreisnar heilbrigðiskerfisins þarf að gæða undirskriftaherferðina nýju lífi. Það gerist ekki með auglýsingum eða greinaskrifum eða með einhverju öðru sem ég gæti tekið upp á. Það gerist eingöngu ef þið 58173 sem hafið skrifað undir takið við kyndlinum. Þið þurfið að hvetja þá sem þið þekkið og þið haldið að styðji átakið til að leggja það á sig að skrifa undir. Þið þurfið að skrifa greinar og láta í ykkur heyra, fara á götur út og hrópa,\" skrifar Kári enn.
Hann biður um hjálp: \"Ég get ekki gert þetta vegna þess að ég er bara einn og einn maður er býsna lítill fjöldi. Það má líka leiða að því rök að minn tími í þessari undirskriftasöfnun sé liðinn vegna þess að það veldur oft vandræðum þegar skíthæll eins og ég er að vinna að góðum málstað. Það er nefnilega þannig með skítinn að hann hefur tilhneigingu til þess að slettast og það má einfaldlega ekkert varpa skugga á þessa baráttu. Ég er þeirrar náttúru að ef ég sé tveggja ára feitan gutta í dulargerfi fullorðins manns, hvort sem hann er hæstvirtur forsætisráðherra eða Kári Stefánsson þá kem ég til með að segja frá því og það er viðkvæmt fólk í okkar samfélagi sem finnst það ljótt að segja frá og halda því enn fram að keisarinn hafi verið í fallegum fötum frá Jör. Við megum ekki fæla þannig fólk frá því að skrifa undir og þess vegna er eins gott að það komi miklu fleiri en ég að þessari söfnum þannig að ég hverfi í fjöldann.\"
Og hann höfðar til tilfinninga: \"Meðan við búum við laskað heilbrigðiskerfi er alltaf hætta á því að fólk þjáist og deyi fyrir aldur fram þegar það hefði verið hægt að koma í veg fyrir það ef kerfið væri í lægi. Og síðan allar “hvað ef” spurningarnar sem skjóta upp kollinum. Sú sorgarfrétt barst okkur til dæmis fyrir nokkru að einn af kollegum okkar hjá Íslenskri erfðagreiningu hafði misst konuna sína. Hún dó skyndidauða 28 ára gömul frá þremur börnum, þriggja mánaða, tveggja ára og sjö ára. Harmur þessarar ungu fjölskyldu er með öllu ólýsanlegur og andlát hennar óásættanlegt. Ég er ekki að halda því fram að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir fráfall konunnar ungu ef við hefðum betra heilbrigðiskerfi en hver veit? Ekki ég. En eitt veit ég að við eigum ekki að þurfa að spyrja “hvað ef” spurninga af þessu tægi vegna þess að við eigum skilið gott heilbrigðiskerfi þannig að við getum sagt þegar voveiflegir atburðir af þessu tagi gerast að þeir hafi gerst þrátt fyrir bestu aðstæður.\"
Að lokum þetta: \"Þessi barátta skiptir of miklu máli til þess að láta hér við sitja vegna þess að annars gefum við stjórnarherrunum tækifæri til þess að halda því fram að þjóðin hafi í dag það heilbrigðiskerfi sem hún sætti sig við og þess vegna sé allt í lagi að veita peningunum annað. Ég trúi því ekki að þjóðin sætti sig við þetta heilbrigðiskerfi og ég veit að hún á betra skilið. Þess vegna verðum við að halda áfram.\"