Hræðileg hugmynd!

Gagnstætt því sem Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra og oddviti Viðreisnar heldur fram þá er það þannig að ef festa ætti gengi krónununnar ætti ekki að festa hana við evru heldur við gjaldmiðil - eða myntkörfu - sem verður gjarnan fyrir sömu útflutningahnykkjum og Ísland. 

Þetta leggur Lars Christensen alþjóða hagfræðingur til grein í Markaðnum sem er í dag fylgirit Fréttablasins. Lars bætir því við að bestu kostirnir hérna væru aðrir auðlindagjaldmiðlar. Eins og Kanada dollar. Norska krónan. Eða nýsjálenskí dollarinn. Það væri hræðileg hugmynd að festa keónuna við evruna. Ísland hefði endað eins og Grikkland ef gengið hér hefði ekki verið sveigjanlegt.