Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, segir hraðfara óheillaþróun vera í Þingvallavatni. Ólafur Örn er vonsvikinn með að Þingvellir hafi enga peninga fengið úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, að þessu sinni.
Ólafur Örn segir að ekki færri en milljón ferðamenn komi gagngert til Þingvalla á þessu ári og þá eru ótaldir allir aðrir ferðamenn.
Vegna alls þessa fólks, hundruði sumarbústaða, Nesjavallavirkjunar og annars sé ör óheillaþróun i Þingvallavatni. Sumt fæst ekki við ráðið, svo sem hlýnun jarðar og mengun frá Evrópu. Öðru eigi að vera hægt að verjast. Þar nefnir hann frárennsli og umferð.
Ólafur Örn er afar ósáttur við synjun um beiðni um peninga úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og segir að með því fyrirkomulagi sem nú tíðkast geri nánast ómögulegt að gera langtímaáætlanir um uppbyggingu.
Að óbreyttu má búast við mun fleiri ferðamönnum á næstu árum og því segir Ólafur brýnt að við verði brugðist svo ekki fari verr en raunin er nú.
Ólafur Örn segir Þjóðgarðinn á Þingvöllum afla nokkurra tekna, með verslun, köfun í Silfru, bílastæðagjöldum og eins gjöldum fyrir salerni.
Þegar Ólafur Örn var spurður um fréttir um að ferðafólk hafi gert stykki sín í Þjóðgarðinum, svaraði þjóðgarðsvörðurinn: „Sóðarnir ferðast líka.“