Hr: gróft kynferðisbrot í rannsókn

Grunur leikur á að rösklega tvítugur nemandi við Háskólann í Reykjavík hafi ráðist með kynferðislegu ofbeldi á tvær skólasystur sínar á bekkjarskemmtun helgina 16. til 17. október, en þær eru einnig þrítugsaldri.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins sem birtir frétt um málið í morgun mun ofbeldið hafa verið gróft, en þar kemur fram að rannsókn lögreglu sé hafin á málinu.

Eiríkur Sigurðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Háskólans í Reykjavík segir við blaðið að skólinn hafi boðið þeim nemendum sem málið snertir alla þá aðstoð sem hann getur veitt - og hafi skólinn meðal annars lagt áherslu á að nám hópsins geti haldið áfram með sem eðlilegustum hætti og að hlutaðeigandi nemendur þurfi ekki að hafa samskipti.