Hótelin kaupa íslenska hönnun

Aukinn fjöldi erlendra ferðamanna til landsins hefur margvísleg atvinnuskapandi áhrif á Íslandi, en meðal þeirra sem njóta góðs af sífellt þyngri straumi útlendinga til landsins eru íslenskir hönnuðir. 

Þetta kom berlega í ljós í þættinum Lífsins list á Hringbraut í gærkvöld þar sem sjónvarpskonan Sirrý fékk að kynnast því hvernig íslensku hótelin, sem spretta nú upp úr jörðu eins og gorkúlur leita í æ meira mæli á náðir íslenskra hönnuða í einu og öllu. 

Í fyrirtækinu Lín Design verða menn verulega varir við þessa aukningu enda mikið að gera við að framleiða sængurfatnað fyrir hótelherbergi. Fyrirtækið hefur sett sér ákveðna umhverfisverndarstefnu og það kunna erlendir gestir vel að meta og margir vilja kaupa línið á hótelunum og taka með sér heim.

Þá er Lín Design með umfangsmikið starf við að safna notuðum sængurfatnaði og gefa áfram til hjálparstarfs á vegum Rauða krossins.

Hægt er að kynna sér þennan anga af ferðaþjónustu landsmanna í þættinum sem hægt er að skoða í heild eða að hluta inni á hringbraut.is.