Hótar þingrofi ef sjálfstæðismenn styðja ekki

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að ef sjálfstæðismenn styðji ekki áframhaldandi setu Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í ríkisstjórn boði hann til þingrofs. Þetta segir Sigmundur Davíð á eigin facebook-síðu eftir fund með Bjarna Ben í morgun.

Færsla Sigmundar Davíðs er eftirfarandi:

 

„Nú í morg­un átti ég mjög góðan fund með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæðis­flokks­ins. Við rædd­um ár­ang­ur rík­is­stjórn­ar­inn­ar og mik­il­vægi þess að klára þau stóru verk­efni sem und­ir­bú­in hafa verið síðustu miss­eri og ár. Mörg þeirra eru gríðarlega mik­il­væg fyr­ir ís­lenskt sam­fé­lag

Meðal ann­ars þarf að ljúka af­námi fjár­magns­hafta, end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið svo að það virki í þágu al­menn­ings, ljúka því sem rík­is­stjórn­ar­flokk­arn­ir höfðu samþykkt um af­nám verðtrygg­ing­ar og inn­leiða um­fangs­mikl­ar úr­bæt­ur í hús­næðismál­um. Mörg­um þess­ara verk­efna hefði ég viljað sjá vinda hraðar fram en enn er þó næg­ur tími til að klára þau, sé vilj­inn fyr­ir hendi.

Jafn­framt fór ég yfir það með for­manni Sjálf­stæðis­flokks­ins að ef þing­menn flokks­ins treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­leg­um verk­efn­um okk­ar myndi ég rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta.

Ég er stolt­ur af verk­um mín­um í stjórn­mál­um til þessa og óhrædd­ur við að leggja þau í dóm kjós­enda hvort sem það verður gert nú eða síðar. Ég er líka stolt­ur af eig­in­konu minni og þeim heiðarleika og fórn­fýsi sem hún hef­ur ætíð sýnt.

Hvort sem litið er til stjórn­mála­bar­áttu und­an­far­inna ára og alls þess sem þar hef­ur gengið á, bæði op­in­ber­lega og inn­byrðis, eða til per­sónu­legra mál­efna fjöl­skyldu minn­ar get ég óhrædd­ur, óhikað og með ánægju svarað fyr­ir verk mín og ákv­arðanir. Þegar ég ákvað að hefja þátt­töku í stjórn­mál­um gerði ég það vegna þess að ég hafði ákveðna sýn á hvað væri nauðsyn­legt að gera til að koma ís­lensku sam­fé­lagi á rétt­an kjöl og gera því kleift að nýta þau óþrjót­andi tæki­færi sem þjóðin býr yfir, sam­fé­lag­inu öllu til heilla. Það hef­ur gengið bet­ur en jafn­vel ég þorði að vona að vinna að þeirri framtíðar­sýn og henni mun ég fylgja áfram á meðan mér gefst tæki­færi til.“