Dulbúnum hótunum um búsifjar íslenskra flugfélaga og annarra íslenskra fyrirtækja sem selja ferðir til og frá Bandaríkjunum eru meðal þeirra meðala sem beitt er í deilum bandaríska flugvélaleigufyrirtækisins Air Lease Corporation (ALC) og Isavia. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins. Eru erindrekar félagsins einnig sagðir gefa stjórnendum Isavia til kynna að spjótum kunni að verða beint að þeim persónulega vegna málsins.
Málið varðar flugvél í eigu ALC sem WOW air hafði á leigu en Isavia hefur kyrrsett vegna vangoldinna lendingar- og annarra flugvallagjalda flugfélagsins.
Pólitísk tengsl milljarðamæringsins Steven F. Udvar-Házy, stjórnarformanns og stofnanda ALC, eru sterk í Bandaríkjunum og ná allt til ráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump. Udvar-Házy hefur ekki farið leynt með bræði sína vegna kyrrsetningar Isavia á vél ALC.
Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu.