Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur fengið líflátshótanir í tengslum við þriðja orkupakkann. Af þeim sökum hefur verið gripið til öryggisráðstafana í utanríkisráðuneytinu. Málið er nú í farvegi hjá ríkislögreglustjóra.
Fréttablaðið greinir frá og vísar til fréttar sem Fréttatíminn birti í gær, en frétt Fréttatímans hefur valdið holskeflu ljótra ummæla í garð Guðlaugar Þórs á samfélagsmiðlum.
Í frétt Fréttatímans er því haldið fram að samþykkt orkupakkans gæti skilað meira en 625 milljónum króna í vasa Guðlaugar Þórs og Ágústu Johnson, eiginkonu hans. Það væri vegna þess að félag í eigu Ágústu, sem á jörðina Hemrumörk í Skaftárhrepp, myndi fá greitt fyrir vatnsréttindi ef virkjað yrði í Hólmsá.
Er því haldið fram að ef lagður verði sæstrengur og raforkuverð hækkar gætu þau hjónin hagnast um 625 milljónir á 50 árum. Hér á landi eru þó engin áform um að leggja sæstreng, auk þess sem að í þriðja orkupakkanum er ekkert sem skuldbindur Íslendinga til að samþykkja lagningu sæstrengs. Kæmi það í hlut Alþingis að samþykkja eða hafna slíkum áformum.
Andstæðingar þriðja orkupakkans hafa deilt frétt Fréttatímans á samfélagsmiðlum í hvívetna og hefur Guðlaugi Þór í nokkrum tilfellum verið hótað lífláti í umræðum í tengslum við fréttina. Þar á meðal í Facebook-hópnum „Orkan okkar: Baráttuhópur.“
„Maður er ýmsu vanur en í þessu tilfelli er augljóst hver ásetningurinn með þessari svokölluðu fjölmiðlaumfjöllun er,“ segir Guðlaugur Þór í samtali við Fréttablaðið.
„Hins vegar er okkur ráðlagt að líflátshótanir beri að taka alvarlega. Þær hótanir sem mér hafa borist á samfélagsmiðlum vegna þessarar fréttar hafa þegar verið settar í farveg hjá ríkislögreglustjóra,“ bætir hann við.
Engin áform um virkjun
Í vor birti Fréttatíminn, sem er ritstýrt af Guðlaugi Hermannssyni, svipaða frétt og spratt þá sömuleiðis upp umræða um jörð Ágústu. Af þeim sökum sendi Guðlaugur Þór frá sér yfirlýsingu. Þar kom fram að jörðin hafi verið í eigu Ágústu síðan árið 2015 og hafi áður verið í eigu fjölskyldu hennar.
Auk þess benti Guðlaugur Þór á að Búlandsvirkjun væri ekki í orkunýtingarflokki í núgildandi rammaáaætlun og að hann hefði engin áform um þá virkjun. Fjölskylda hans hefði auk þess enga aðild að áformum, enda telji hún að slík virkjun myndi hafa neikvæð áhrif á umhverfið.
Atkvæðagreiðsla vegna þriðja orkupakkans mun fara fram á Alþingi á mánudaginn kemur, 2. september.