Bankastjóri Arion banka segir umræðu um áhugaleysi útlendinga á íslensku fjármálakerfi mjög furðulega þar sem erlendir fjárfestar hafi keypt meira en 70 prósent af þeim bréfum sem voru seld í vel heppnaðri skráningu Arion banka á hlutabréfamarkað í fyrra. Um var að ræða tvíhliða skráningu samtímis kauphöllunum í Reykjavík og Stokkhólmi.
Ríkissjóður á 100 prósent hlutafjár í Íslandsbanka og rúmlega 98 prósent hlutafjár í Landsbankanum. Í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið er ítarleg umfjöllun um þá valkosti sem stjórnvöld hafa vegna eignarhalds á bönkunum og síðar sölu þeirra. Er þar mælt með skráningu og sölu í gegnum skipulegan verðbréfamarkað en bæði írska og hollenska ríkið fóru slíka leið með hluta af þeim bréfum sem runnu í faðm þessara ríkja eftir alþjóðlegu fjármálakreppuna.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2019190128861