Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, mun sækjast eftir fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í NA-kjördæmi fyrir komandi alþingkosningar í haust. Vikudagur segir frá þessu en Höskuldur lýsti þessu yfir í bréfi sem hann sendi flokksmönnum.
Höskuldur mun því taka slaginn gegn Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins og fyrrum forsætisráðherra, sem einnig sækist eftir að leiða flokkinn í NA-kjördæmi. Höskuldur skrifar að hann vonist eftir því að Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra gefi kost á sér til formennsku á komandi flokksþingi.