Gestir Laugardagsþáttar Þjóðbrautar verður á dagskrá útvarps Hringbrautar í fyrramálið klukkan tíu. Fjölbreytt málaskrá verður í þættinum.
Fyrst verður rætt við Óttar Sveinsson rithöfund sem hefur sent frá sér tuttugustu og þriðju útkallsbókina. Hann talar um bókina, stöðu Landhelgisgæsluna og vinnuna að baki bókunum.
Vestfirðingum er brugðið þar sem ekki er gert ráð fyrir Dýrafjarðargöngunum í fjárlagafrumvarpinu. Friðbjörg Matthíasdóttir, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar, verður í viðali um samgöngubætur vestra og stöðuna í hennar sveitarfélagi.
Þrír nýir þingmenn mæta í stjórnmálahluta þáttarins; Andrés Ingi Jónsson, Vinstri grænum, Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokki og Pawel Bartoszek í Viðreisn.
Guðrún Helga Sigurðardóttir, fyrrum blaðamaður og nú fararstjóri, og Valgeir Skagfjörð leikari fjalla svo um helstu fréttir liðinna daga.
Sigurjón M. Egilsson er stjórnandi þáttarins.
Hægt er að hlusta á hringbraut.is og svo næst útvarpið á þessum tíðnum víða um land:
89,1 - Reykjavík
91,7 - Blönduósi
91,1 - Sauðárkróki
89,9 - Egilsstöðum
89,9 - Selfossi
87,7 - Akureyri