Ísland er í hópi tiltölulega fárra landa þar sem horfur krabbameinssjúklinga eru hvað bestar að því er fram kemur í nýrri samantekt í læknatímaritinu Lancet.
Horfur einstaklinga með krabbamein eru almennt að batna í heiminum, jafnvel hjá þeim sem glíma við erfiðustu krabbameinin eins og í lifur og lungum. Þetta eru niðurstöður nýrrar og víðtækrar rannsóknar sem birt var í gær og spannaði um 14 ára tímabil frá árinu 2000. Rannsóknin náði til landa þar sem tveir þriðju hlutar mannkyns búa og leiðir í ljós að mikill munur er á lifun milli landa, sérstaklega þegar kemur að tilteknum gerðum krabbameina í börnum.
Sem dæmi hafa horfur barna með heilaæxli batnað í mörgum löndum. Þannig er fimm ára lifun hjá börnum sem greindust allt fram til ársins 2014 tvöfalt hærri í Danmörku og Svíþjóð, í kringum 80%, á meðan hún er innan við 40% í Mexíkó og Brasilíu. Líkur eru á að þetta endurspegli aðgang sjúklinga að greiningu, gæði greiningarinnar og meðferðarúrræði.
Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands tók þátt í rannsókninni sem nefnist CONCORD-3 og var birt læknaritinu The Lancet. Hún byggðist á greiningum einstaklinga frá 322 krabbameinsskrám í 71 landi eða landssvæðum. Borin var saman fimm ára lifun frá greiningu hjá yfir 37,5 milljónum einstaklinga, bæði fullorðnum (15-99 ára) og börnum (0-14 ára). Um var að ræða 18 algengustu krabbameinin, eða 75% krabbameina sem greind voru á árunum 2000-2014.
Eftir að búið er að taka tillit til mismunandi aldurs og dauðsfalla af öðrum orsökum hafa krabbameinssjúklingar í eftirfarandi löndum bestu horfur í heiminum og hafa þær haldist nokkuð stöðugar síðustu 15 árin: Bandaríkin, Kanada, Ástralía, Nýja Sjáland, Finnland, Noregur, Ísland og Svíþjóð.