Horfur eru á fyrstu efnahagskreppunni frá bankahruni hér á landi í kjölfar þess að WOW air hætti allri starfsemi. Arion banki spáði því í gær í hagspá sinni að landsframleiðsla myndi dragast saman um 1,9 prósent færi svo að WOW legði upp laupana. Þá spáði bankinn því að ferðamönnum myndi fækka um 16 prósent og að störfum í ferðaþjónustu myndi fækka um 2.500 manns.
Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu.
Þjóðarbúið stendur þó styrkum fótum. Erna Björg Sverrisdóttir, sérfræðingur hjá greiningardeild Arion banka, sagði í gær að þrátt fyrir dökka hagspá væru grunnstoðir hagkerfisins sterkar. Hagkerfið væri betur í stakk búið að takast á við niðursveiflu en oft áður þar sem skuldastaða heimila, fyrirtækja og ríkisins væri góð, erlend staða þjóðarbúsins einstaklega sterk og gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins byggi á breiðari grunni en áður.
Hagspá bankans gerði ráð fyrir að jafnvel þó að WOW hefði lifað af myndi landsframleiðsla dragast saman um 0,8 prósent, ferðamönnum fækkað um 9 prósent og þúsund störf í ferðaþjónustunni tapast.
Í umfjöllun Viðskiptablaðsins segir að líklegt sé að birtingarmynd samdráttar hagkerfisins komi fram í meiri mæli í auknu atvinnuleysi, fremur en gengisfalli og verðbólgu, sem Íslendingar hafi oftar fengið að finna fyrir í gegnum árin. Arion banki spáir því að atvinnuleysi hækki í 4,4 prósent á þessu ári og 4,8 prósent á næsta ári eftir að WOW air hætti starfsemi, en atvinnuleysi mældist undir 3 prósent á síðasta ári. Þá verði verðbólga nær 4 prósent á þessu ári og hækki upp í 4,7 prósent á næsta ári. Undir lok árs 2018 var verðbólgan orðin 3,7 prósent en stendur nú í 2,9 prósentum.