Hækkun vaxta- og húsaleigubóta

Verið er að ganga frá tillögum innan fagráðuneyta um hvernig ríkisstjórnin geti liðkað til fyrir kjaraviðræðum og eru þar helst nefndar hugmyndir um hækkun á vaxtabótum, svo og fjölþættar aðgerðir til að bæta hag leigejnda, en þar á meðal er nefnd lækkun skatta á leiguhúsnæði. Þegar hafa aðgerðir í tollamálum verið kynntar sem gætu lækkað verð á fatnaði og skóm umtalsvert. Þá er einnig hugsanlegt að ríkisvaldið hafi beina aðkoma að virkari húsaleigumarkaði, en viðvarandi skortur á íbúðarhúsnæði í mörgum helstu þéttbýlisstöðum landsins, ekki síst í Reykjavík, hefur ýtt leigu- og fasteignaverði upp svo um munar. Hringbraut.is hefur þegar sagt frá því að jafnvel í úthverfum höfuðborgarinnar seljast 100 fermetra íbúðir á 30 milljónir sem er líklega 30% hækkun frá því sem var á fyrstu árunum eftir hrun.


Himinn og haf er á milli krafna verkalýðsforystunnar og vilja Samtaka atvinnulífsins til samninga og segjast þeir síðarnefndu raunar aldrei hafa staðið frammi fyrir jafn háum kröfum. Þeir þurfa raunar ekki aðeins að taka þann slag við verkalýðsfrömuði því framámenn ríkisstjórnarinnar hafa nýverið tekið undir kröfur Starfsgreinasambandsins um 300 þúsund króna mánaðalaun, þar á meðal forsætisráðherra og nú síðast formaður fjárlaganefndar í þættinum Þjóðbraut hér á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sem kvaðst "afdráttarlaust þeirrar skoðunar" að hækka beri lágmarkslaunin upp í nefna fjárhæð.