Hinn vinsæli íþróttafréttamaður, Hörður Magnússon er afar ósáttur. Hefur hann fengið sig fullsaddan af illmælgi og í sumum tilfellum viðbjóði sem á sér stað á samfélagsmiðlum. 433.is vakti fyrst athygli á málinu.
Í gær birti Hörður umdeilda spá sem sneri að því hvernig hann telur að niðurstaðan verði í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þar spáði hann Manchester United sjöunda sætinu. Vakti spáin mikla athygli og úlfhúð. Rigndi skilaboðum yfir Hörð og hefur sonur hans meðal annars vakið athygli á því allra versta sem var skrifað á samfélagsmiðla.
einn vinsælasti íþróttafréttamaður landsins virðist hafa fengið nóg af þeim viðbjóði sem oft er á samfélagsmiðlum. Þannig skrifaði maður að nafni Arnar Eggertsson:
„Þetta er svo snarbrenglað Poolara eintak þessi manndjöfull, segðu mér að það sé einhver fyrir löngu búinn að skalla þetta gerpi?“
Hörður brást svo sjálfur við á Twitter í gærkvöldi. Þar sagði Hörður og var mikið niðri fyrir:
,,Enn og aftur fá fársjúkir einstaklingar hljómgrunn hér á þessu forriti. Trúlega er kominn tími að kanna sína réttarstöðu.“