Í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun var farið yfir lífskjarasamninginn. Gestur þáttarins var ritstjóri Markaðarins á Fréttablaðinu, Hörður Ægisson. Hann hefur á síðustu mánuðum í leiðaraskrifum gagnrýnt harðlega forystu verkalýðshreyfingarinnar. Varð það til þess að Hörður var sjálfur gagnrýndur af verkalýðshreyfingunni og fóru Sólveig Anna Jónsdóttir, Gunnar Smári Egilsson og svo Vilhjálmur Birgisson hörðum orðum um Hörð. Þá sá Efling ástæðu til að senda frá sér fréttatilkynningu þar sem Fréttablaðið og Hörður fengu sinn skerf af skömmum. Sólveig Anna sagði:
„Öfgaskoðanir þær sem Hörður Ægisson aðhyllist þegar kemur að efnahagsmálum eru ekki lengur bundnar við leiðara eða skrif í Markaðinn. Nú er forsíða Fréttablaðsins undirlögð af þessari yfirgengilegu vitleysu. Það er ekki annað hægt en að hrista hausinn.“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, skaut svo á Hörð eftir að kjarasamningar höfðu verið undirritaðir. Vilhjálmur sagði:
„Ég held að margir leiðarahöfundar í íslensku samfélagi sem hafa gagnrýnt nýja forystu í verkalýðshreyfingunni harðlega að undanförnu sagt okkur óábyrg og jafnvel að stefna efnahagslífinu í hættu, ættu nú eiginlega að biðja okkur afsökunar.“
Sigmar Guðmundsson spurði Hörð hvort hann sæi ástæðu til að biðjast afsökunar. Hörður svaraði:
„Nei ég ætla nú að láta það vera. Ég lít kannski frekar á það þannig að þau hafi tekið mark á þeirri gagnrýni minni sem ég hef sett fram í leiðaraskrifum mínum.“
Þá spurði Sigmar hvort Hörður hefði ekki gengið of langt í skrifum sínum.
„Maður þarf stundum að vera beittur og mér fannst verkalýðshreyfingin mun harðorðari en nokkurn tímann ég,“ svaraði Hörður þá og hélt áfram: „Stundum þarf maður að setja fram skoðanir sínar með dálítið beinskeyttum hætti til að eftir því sé tekið. Ég sá að Vilhjálmur Birgisson, sveitungi minn ofan af Akranesi, vildi að ég bæðist afsökunar. Ég ber mikla virðingu fyrir Vilhjálmi, hann hefur náð oft á tíðum mjög góðum samningum fyrir sitt félagsfólk, en í aðdraganda þessara samninga held ég að hann og félagar hans hafi kannski gengið aðeins of langt. En þeir sáu ljósið að lokum og náðu góðum samningum.“