Fyrrum bílstjórinn Hörður Jónasson þurfti að losna við innbúið úr íbúð sinni sem hann er að selja í Reykjavík og ákvað að gefa það allt í einu lagi til úkraínskra flóttamanna.
Hörður er 67 ára gamall og fæddur og uppalinn Þingeyingur en hann flutti aftur til heimahaganna á Húsavík á meðan hann jafnar sig eftir krabbameinsmeðferð.
„Hjarta mitt er að springa af gleði. Fyrir fáum dögum tæmdi ég íbúð mína þar sem ég er að selja hana. Hafði ekki þörf fyrir innbúið svo ég ákvað að bjóða það frítt á fb. síðu,“ skrifar í Hörður í Facebook færslu þar sem hann lýsir atburðarásinni.
Hörður segir marga hafa haft samband við sig en svo fór að lokum að hann fékk skilaboð frá hjónum í Hafnarfirði sem voru að safna innbúi í íbúð á Bifröst sem ætluð er flóttafólki frá Úkraníu.
„Sagði þeim að koma í íbúðina eftir hálftíma sem og þau gerðu og þau tóku 80% af innbúinu. Hér eru myndir frá fyrsta degi þar sem þau eru að koma hlutunum fyrir,“ skrifar Hörður.
Að sögn Harðar tóku hjónin bróðurpartinn af innbúinu hans, eða allt sem var heillegt og hægt að nýta fyrir flóttafólkið. Þá þykir Herði ekki verra að innbúið skuli hafa endað á Bifröst þar sem hann stundaði þar sjálfur nám á árum áður.
„Hér er sem sagt mitt framlag og það er komið á Bifröst, minn gamla skólastað. Njótið vel kæru íbúar frá Úkraínu. Einnig eru hér nokkrir tenglar ef þið viljið hjálpa til. Skammtímahúsnæði fyrir flóttafólk frá Úkraínu | ÚKRAÍNA | FSRE fsre.is Help to Ukraine | Facebook,“ skrifar Hörður að lokum og hvetur fólk til að gefa hluti sem það hefur ekki not fyrir til þeirra sem þurfa á að halda.