Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðar Fréttablaðsins, er gestur Jóns G. í fyrsta viðskiptaþætti hans á nýju ári. Þeir koma víða við í stórfréttum viðskiptalífsins á síðasta ári. Að sjálfsögðu fara þeir vel yfir útnefningu blaðsins á Viðskiptamanni ársins 2019: Árna Oddi Þórðarsyni. Fara yfir bestu og verstu viðskiptin og ræða samkeppnishæfni atvinnulífsins á Íslandi um þessi áramót þegar laun eru hærri en í viðskiptalöndunum, raunvextir háir, skattar hærri en gengur og gerist, gengi krónunnar firnasterkt og áfram mætti telja í mjög fróðlegu spjalli þeirra.
Afar líflegur þáttur kl. 20:30 í kvöld – og auðvitað á Hringraut.