Ljósmæður gagnrýna ummæli svandísar

Ljósmæður virðast vera að missa þolinmæðina í samskiptum sínum við ríkisvaldið um kjaramál.

Í harðri yfirlýsingu sem Ljósmæðrafélagið og BHM sendu frá sér í morgun undir yfirskriftinni „Kaldar kveðjur heilbrigðisráðherra til ljósmæðra“ segir að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hafi þar látið orð falla sem megi skilja sem svo „að hún telji að ljósmæður geti sjálfum sér um kennt að þær lækki í launum við að bæta við sig námi. Þessa stöðu megi rekja til þess að ljósmæður hafi valið að vera í sérstöku stéttarfélagi innan BHM,“ segir í yfirlýsingunni og að Svandís hafi gefið í skyn að það væri hagsmunum ljósmæðra væri betur borgið ef þær væru í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.“

Ljósmæður og BHM lýsa yfir „undrun og vanþóknun“ á ummælunum. „Það blasir við öllum sem það vilja sjá að fullkomlega óeðlilegt er að ljósmæður lækki í launum við það að bæta við sig tveggja ára ströngu háskólanámi ofan á hjúkrunarfræðinám. Fráleitt er að rökstyðja eða réttlæta slíka launalækkun með vísan til þess að ljósmæður hafi valið að vera í sérstöku stéttarfélagi innan heildarsamtaka háskólamenntaðra á íslenskum vinnumarkaði. Staðan í kjaraviðræðum ljósmæðra við ríkið er alfarið á ábyrgð stjórnvalda sem hafa hafnað því að koma til móts við sjálfsagðar og eðlilegar kröfur ljósmæðra,\" segir í yfirlýsingunni.

Áslaug Íris Valsdóttir Petty, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segir í samtali við Stundina að ljósmæður séu móðgaðar vegna þessara orða ráðherrans. „Í mínum huga er þetta alveg glórulaust, á að meta verðmæti starfa út frá því í hvaða stéttarfélagi fólk er? Svona leysir ekki nokkurn skapaðan hlut. Það er mikil óánægja meðal ljósmæðra vegna þessa og þessi orð ráðherra koma okkur mjög á óvart.“