Fólk mótmælir við heimili ráðherra


Grasrótarhópurinn Beinar aðgerðir boðar til mótmæla við heimili Bjarna Benediktssonar klukkan 19 að kvöldi 1. maí. Yfirskrift mótmælanna er \"Grillum á kvöldin – sækjum þau heim\".
Hópurinn hvetur á facebook-síðu alla landsmenn til að mæta í grillið með einnota grill, mat, tjaldstóla, trommur og góða skapið. Einnig sé gott að æfa raddböndin aðeins og slagorð til þess að syngja. \"Í kjölfarið verða heimili ráðherra ríkisstjórnarinnar þrædd, eitt heimili á kvöldi. Látum þá ekki sitja eina að grilli og gróða á kostnað okkar hinna!\"
Einnig segir: \"Ef gleðskapurinn hentar ekki Bjarna Benediktssyni og hans félögum í ríkisstjórn þá er lítið mál að kippa því í liðinn. Það eina sem hann þarf að gera er að samþykkja kröfur hópsins fyrir 1. maí:
Ríkisstjórn Íslands segi af sér og mynduð verði utanþingsstjórn. Sett verði dagsetning á kosningar, ekki seinna en 10. september.
Ef ríkisstjórn Sigurðar Inga hefur ekki aðhafst fyrir 1. maí þá hittumst við, kæru landsmenn, stundvíslega við heimili Bjarna klukkan 19:00 þann 1. maí.\"
Áréttar er að þetta séu friðsamleg mótmæli. Eignaspjöll og ofbeldi eyðileggi fyrir málstaðnum. Einnig sé mikilvægt að virða lóðamörk.
Þá segir: \"Mæting mótmælenda við heimili ráðamanna er stórt skref. Grasrótarhópurinn Beinar aðgerðir telur það hins vegar nauðsynlegt. Mótmælt hefur verið á Austurvelli í hátt í þrjár vikur. Á fyrstu mótmælunum mættu um tuttugu þúsund manns. Næsta laugardag á eftir mættu um fjórtán þúsund manns. Á meðan situr ríkisstjórnin við völd og Bjarni lýsir því yfir að hún muni „ekki stjórnast af mótmælendum,“ þ.e.a.s. eindregnum og skýrum vilja almennings.
- Íslenskt samfélag berst í bökkum með laskað heilbrigðiskerfi, veikara menntakerfi, landsbyggðarflótta, aukinn ójöfnuð og fátækt, húsnæðisskort og gríðarlegar skuldir heimilanna. Eftir birtingu Panamaskjalanna er okkur ljóst að ástæðan er rán og græðgi 600 Íslendinga sem hafa holað þjóðarbúið að innan. Í samanburði við þá árás sem íslensk heimili máttu þola í hruninu mega rök um friðhelgi heimilis formanns Sjálfstæðisflokksins sín lítils, það var nú einu sinni hans flokkur sem tók þátt í árásinni á heimili landsins.
Þegar traust er ekkert eru nokkrir mánuðir of langur tími fyrir íslenska þjóð að bíða – við viljum að ríkisstjórn Íslands segi af sér strax!\"

-BÞ