Hópur eldri leikkvenna bregst með látum og leik gegn fáum hlutverkum

Það er vissulega nógu vandasamt að vera leikkona á Íslandi þar sem leikhúsin eru fá, hlutverkin stundum smá og fer alveg örugglega fækkandi eftir því sem aldurinn færist yfir.

Þennan veruleika eru Leikhúslistakonur 50+ að tækla með tilþrifum þessa dagana, en þær hafa fengið inni í Þjóðleikhúskjallaranum þar sem þær brillera í hlutverkum sínum, hver á fætur annarri, burtséð frá Elli kerlingu sem bankar misjafnlega hart á hurðina.

Þetta er umræðuefnið í bráðskemmtilegu viðtali Sigmundar Ernis við leikkonurnar og leikstýrurnar Eddu Þórarinsdóttur, Juliu Hannam og Kolbrúnu Halldórsdóttur í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld þar sem hlutskipti íslenskra leikkvenna er rætt af hispursleysi.

Þær stöllur eru í allstórum hópi íslenskra leikkvenna, 50 ára og eldri sem hafa tekið höndum saman á sviðinu og skapa sér sjálfar hlutverk og rými í íslensku leikhúsi - og afraksturinn er hægt að sjá í kjallarnum næstu vikur og misseri.