Hópuppsögnum fjölgað á síðustu árum

Alls var 864 einstaklingum sagt upp í 15 hópuppsögnum á síðasta ári. Fleiri einstaklingum hefur ekki verið sagt upp í hópuppsögnum síðan árið 2009. Einstaklingum sem er sagt upp í hópuppsögnum fjölgar milli ára fjórða árið í röð. Stór hluti uppsagnanna tengist fjárhagslegum erfiðleikum WOW air með beinum hætti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í úttekt RÚV.is á hópuppsögnum á tímabilinu 2008-2018.

Á fjórða hundrað manns var sagt upp hjá WOW air í síðasta mánuði og í nóvember sagði fyrirtækið Airport Associates á þriðja hundrað manns upp vegna óvissu um framtíð WOW air. Forstjóri Airport Associates hefur þó sagt að draga mætti stóran hluta uppsagna til baka ef endanlegir samningar nást um kaup Indigo Partners í hlut á WOW air, eins og samið hefur verið um í grundvallaratriðum.

Um 45 prósent þeirra sem sagt var upp í hópuppsögnum í fyrra störfuðu í flutningum (farþega- og vöruflutningar), 31 prósent í framleiðslu og 17 prósent í fiskvinnslu.

Árið 2008 voru hópuppsagnir í hæstu hæðum í kjölfar efnahagshrunsins, 5.074 manns var sagt upp í hópuppsögnum það ár og árið 2009 var 1.780 manns sagt upp. Á árunum 2010-2014 fækkaði þeim aðilum sem var sagt upp í hópuppsögnum jafnt og þétt og náðu þar lágmarki árið 2014 þegar 231 manns var sagt upp. Frá 2015 hefur þeim sem sagt er upp í hópuppsögnum fjölgað ár frá ári.