Hope Hicks, samskiptastjóri Hvíta hússins og einn nánasti samstarfsmaður Trumps Bandaríkjaforseta frá því framboðs hans fór af stað, ætlar að hætta störfum. Þetta var tilkynnt í gær einum degi eftir að Hicks kláraði erfiðar yfirheyrslur um Rússamál forsetans hjá leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar þingsins.
Þar viðurkenndi Hicks að hafa nokkrum sinnum gripið til hvítrar lygi í starfi sínu fyrir forsetann, en þó aldrei í tengslum við Rússarannsóknina. Engu að síður er bent á að hún hafi einmitt orðið ber að ósannsögli þegar hún sagði stuttu eftir kosningarnar að framboð forsetans hefði engin samskipti haft við erlenda aðila. Annað kom í ljós.
Hope, sem er 29 ára, er fjórði samskiptastjóri Hvíta hússins sem hættir á rúmu ári. Hún segir sjálf að henni hafi fundist hún hafa áorkað því sem hún setti sér í starfinu.