Danski hönnuðurinn Frederik Bagger byrjaði ungur að spá í fagurfræðina á bakvið hönnun. Frederik Bagger er sonur Erik Bagger sem er vel þekktur hönnuður í Danmörku. Segja má að Frederik hafi byrjað snemma að læra af föður sínum. Hönnun Frederik Bagger er orðin eitt af stærstu og þekktustu skandinavísku vörumerkjunum í dag en hann hefur sérhæft sig í fallegum kristals- og postulínsbúnaði. Fyrirtækið var stofnað árið 2014 af Frederik Bagger sem er sannarlega eldhugi í hönnunargeiranum. Enda kynntist Fredrik á uppvaxtarárunum sínum frábærri hönnun af föður sínum Erik Bagger, sem hefur hannað nokkur af þekktari merkjum í gegnum tíðina og ber þess sterk merki. Frederik Bagger lærði allt um skandinavíska hönnun og fagurfræði, notkun á gæða efnum og ekki síst einstakt handverk. Allt þetta varð grunnurinn að hágæða hönnun Frederik Bagger í dag.
Verslunin Norr11 Reykjavík hefur meðal annars hafið sölu á þessu tillögulega unga merki, Frederik Bagger við góðar undirtektir. Merkið hefur náð ótrúlegum vinsældum á stuttum tíma og er komið í sölu í mörgum verslunum. Má þar nefna þessi fáguðu og hátíðlegu Gatsby Emerald glös sem fanga augað með fagurlegu útliti sínu. Þessi eru glæsileg meðal annars fyrir kampavín og það má líka nýta þau bera fram eftirrétti eða forrétti á fallegan hátt.