Hönnu birnu kippt af forsíðu man

Prentun á nýjasta eintaki tímaritsins MAN var frestað í síðustu viku vegna þess að Hanna Birna Kristjánsdóttir þingkona, sem veitt hafði blaðinu einkaviðtal, birtist í Íslandi í dag á Stöð 2 og gaf sjónvarpsfólkinu þar sama viðtal og hún hafði gefið tímaritinu.


Hafa þurfti skjót viðbrögð til að skipta um forsíðu tímaritsins sem Hanna Birna átti að vera á, en mikið hafði verið lagt í að ljósmynda hana svo hún kæmi þar vel út. Í viðtalinu í MAN talar Hanna Birna á mjög persónulegum nótum um líf sitt síðustu mánuði, en svo að segja allt sem hún sagði í því viðtali endurtók hún svo í viðtalinu í Íslandi í dag, starfsfólki MAN til mikillar gremju en það taldi sig vera með einkaviðtal í höndunum. Blaðið átti að fara í prentun sama dag og Hanna BIrna birtist á Stöð 2. 


Heimildir Nútímans, sem greinir frá málinu í dag, herma að búið hafi verið að taka viðtalið við Hönnu Birnu fyrir MAN þegar hún mætti í Ísland í dag og endurtók nánast orðrétt það sem hún sagði blaðamanni MAN. Prentun á blaðinu hafi því verið frestað á meðan nýtt forsíðuviðtal var tekið.