Holuhraun er að verða vinsæll viðkomustaður ferðalanga eftir því sem lengra líður á sumarið og greiðfærara er þangað inn eftir, en mikil snjóalög fyrr í sumar hindruðu flestum ferðamönnum för þangað.
Frá því seint í júní hefur veri greiðfært inn að hraunjaðrinum fyrir alla sæmilega útbúna jeppa í þessa undraveröld á einum afskekktasta stað landsins og er greint frá því í Morgunblaðinu um helgina að síðustu daga hafi umfeerð þangað verið jöfn og stöðug.
Eldgosinu í Holuhrauni lauk 28. febrúar á þessu ári og hafði þá staðið í rétt tæpa sex mánuði. Enn má víða á þessum slóðum finna snarpan hita í hrauninu ef lófi er lagður á jörð. Gufustróka leggur upp frá jaðri þess og þar sem hraunhellan er þykkust er enn rauðaglóð undir.
\"Það hefur verið ofsalega spennandi að vera hér síðustu mánuði. Fyrst að fylgjast með hamförunum og að dveljast hér núna þegar landslagið er gjörbreytt. Vísindamenn sækja mikið hingað og nú flykkjast ferðamenn hingað. Að undanförnu hefur verið nokkuð margt, oft á bilinu 100-200 manns á dag,“ segir Stefanía Eir Vignisdóttir, yfirlandvörður á Öskjusvæðinu í samtali við Morgunblaðið. Óhætt er því að segja bæði með tilliti til þess að kraumandi hiti er enn í jörðu og staðurinn fjölsóttur að Holuhraun sé heitur reitur.
Landverðir Vatnajökulsþjóðgarðs hafa aðsetur við Drekagil í Dyngjufjöllum og sinna þaðan landvörslu á víðfeðmu svæði. Til suðurs frá Dreka er um 15 kílómetra leið að jaðri Holuhrauns og áherslumál er að þar eða í grennd sé alltaf einhver á vaktinni. Frá Hringveginum við Hrossaborg á Mývatnsöræfum að hraunbrún eru um 115 kílómetrar.
\"Ég kom á landvarðavaktina hér í október og var fram undir áramót. Þá þurfti að sinna hér ýmsu aðkallandi, svo sem eftirliti, merkingu, að setja upp stikur við vegi og fleira,“ segir Stefanía sem sneri aftur í júní síðastliðnum. Verkefnin nú segir hún snúa að þjónustu við ferðamenn, svo sem með upplýsingagjöf, fræðslu, viðhaldi og uppbyggingu aðgengis að svæðinu. Í því efni er öryggi ferðamanna og náttúruvernd í fyrirrúmi. Þannig voru nú snemmsumars lagðir göngustígar á tveimur stöðum í úfnu hrauninu, svo sem við austurjaðar þess, þar sem nú hefur myndast heit laug sem vinsælt er að baða sig í.
En áður en að Holuhrauni er komið þarf að sigrast á ýmsum hindrunum. Sendinn vegurinn úr Öskju getur verið þungur yfirferðar og rétt við hraunið vestanvert, þangað sem margir leggja leið sína, þarf að fara yfir nokkuð stórgrýtta bergvatnsá sem sprettur upp úr sandinum: \"Vegir eru að báðum gönguleiðum inn á hraunið. Við leggjum mikið upp úr því að reyna að sporna gegn utanvegaakstri. Reyndum því alltaf að taka bílstjóra sem hér fara um tali og leiðbeina þeim,“ segir Stefanía við Morgunblaðið.