Holtavörðuheiði og vatnsskarð: lokað

Holtavörðuheiði er lokuð vegna veðurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Þá er Siglufjarðarvegur lokaður sem og Súðavíkurhlíð vegna snjóflóða. Víða er mikil hálka eða óveður t.d. á Kjalarnesi.
Ófært er um Bröttubrekku en unnið er að hreinsun. Ófært er yfir Fróðárheiði og fyrir nes en þæfingsfærð á Vatnaleið og unnið að hreinsun.
Á Vestfjörðum er ófært um Steingrímsfjarðarheiði, Þröskulda og Klettsháls. Lokað er um Súðavíkurhlíð.
Snjóþekja eða þæfingur oft með skafrenningi eða snjókomu einkennir flestar leiðir á Norðurlandi. Ófært er sem stendur á Vatnsskarði en unnið að opnun. Ófært er um Þverárfjall og þæfingsfærð víða s.s. á Öxnadalsheiði, milli Dalvíkur og Akureyrar, á Víkurskarði og víðar. Árekstur varð í Víkurskarði í gær og mikill viðbúnaður.
Á Austurlandi er ófært um Möðrudalsöræfi og þungfært í Jökuldal. Þungfært er á Fjarðarheiði þar sem einnig er stórhríð. Hálka.
Autt er með suðausturströndinni en þó hálkublettir á köflum.