Breyta á Holtagörðum í samgöngumiðstöð með veitingatorgi og verslunum fyrir ferðamenn. Gert er ráð fyrir að daglegum gestum þar fjölgi um rúmlega eitt þúsund.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fasteignafyrirtækinu Reitum sem hafa undirritað samning við ferðaþjónustufyrirtækið Grey Line Iceland um að flestar ferðir félagsins hefjist og endi í Holtagörðum. Fyrirtækið á og rekur um 70 hópferðabíla. Bílaleigurnar AVIS og Budget verða einnig með starfsemi í Holtagörðum.
Ráðist verður í miklar breytingar á húsnæðinu, bílastæðinu og umferðarflæði í tengslum við þetta nýja hlutverk Holtagarða. Verið er að vinna að hönnun á veitingatorgi og skipulagi á svæði fyrir verslanir með varning fyrir ferðamenn.