Hólmganga í framsókn

Þá er ljóst að Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, mun etja kappi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson um formannssæti Framsóknarflokksins.

Engum dylst að vík er milli þessara fyrrum vina. Mikið er undir, það er formennska í hinum aldargamla Framsóknarflokki.

Hver sem úrslitin verða í formannskjörinu er víst að sár verða opin og óljóst hvenær þau gróa.
Framundan eru spennandi dagar hjá Framsóknarfólki. Kjördæmisþingið á Suðurlandi verður á morgun. Búist er við að Sigurður Ingi skýri þar ákvörðun sína um formannsframboðið. Trúlegt er að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verði á þinginu, sem formaður flokksins, og þá er að sjá hvort hann tekur til máls.

Athygli vekur að Sigurður Ingi tilkynnti formannsframboð sitt í fréttatíma Ríkisútvarpsins, nýkominn af þingflokksfundi þar sem rætt var um forystu flokksins, án þess að segja þingmönnum flokksins frá ákvörðun sinni.

Hvort eftirmálar verða af því er óvíst.