Hollenska parið sem kom til landsins á húsbíl með Norrænu í byrjun september, reyndist vera með 209 þúsund MDMA-töflur og 10 kíló af MDMA-mulningi.
Þetta kemur fram í farbannsúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur yfir konunni sem staðfestur var í Hæstarétti í gær. Verði fólkið sakfellt fyrir innflutninginn á það yfir höfði sér mjög þungan dóm ef litið er til sambærilegra mála að því er fram kemur í frétt RÚV um málið í morgun.
Þar segir að þetta sé mesta magn sem lagt hafi verið hald á af slíkum töflum hér á landi. Ef miðað sé við verðkönnun SÁÁ frá því í ágúst 2013 megi ætla að verðmæti MDMA-taflnanna sé um 627 milljónir íslenskra en hver tafla kostaði þá um 3.000 krónur. Verðmæti MDMA-mulningsins gæti því verið um 50 milljónir ef miðað sé við verð á grammi af amfetamíni, eða samanlagt nærfellt 700 milljónir.
Fólkið hafði falið í niðursuðudósum, tveimur gaskútum og varadekki húsbílsins, væru um 80 kíló. Maðurinn hefur játað að hafa vitað af fíkniefnunum og sagst vera svokallað burðardýr. Konan hefur fullyrt við yfirheyrslur að hún hafi ekkert vitað. Fram kemur í greinargerð ríkissaksóknara að þær skýringar séu taldar ótrúverðugar.