„Við höfum verið með gríðarlegan vöxt, en vöxturinn hefur núna snúist í varnarbaráttu. Þegar svona margir þættir leggjast á einn; við erum með óvissu varðandi gengið, við erum með óvissu varðandi erlenda samkeppni, við erum með óvissu varðandi kjaramálin, aukinn kostnað o.s.frv. Svo bætist þetta ofan á. Þannig að við erum að horfa svolítið inn í þokuna núna og það er ekki gott að í þokunni leynast skrímsli sem bíða okkar handan við hornið.“
Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, sem er gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hann um starfsemisstöðvun WOW air og þau áhrif sem hún hefur á ferðaþjónustuna. Jóhannes segir örlög WOW ekki hafa komið sér á óvart og að ferðaþjónustan hafi verið búin undir þetta. Vissulega sé þó um högg að ræða.
„Þetta er nokkuð stór skellur, við eigum kannski eftir að sjá hversu stór hann verður vegna þess að við vitum það að önnur flugfélög eru að horfa til þess að fylla upp í það markaðsgat sem myndast þarna. Það sem við þurfum að huga að núna er bæði þessi langtímauppbygging á áfangastaðnum og að við fáum verðmætari ferðamenn til lengri tíma. Það þarf að horfa til ýmissa þátta í því, bæði hjá atvinnugreininni og stjórnvöldum. Svo hins vegar það líka að til skamms tíma þurfum við að taka á móti þessu höggi sem við erum nú að verða fyrir til þess að létta fyrirtækjunum sinn rekstur,“ segir Jóhannes.
Hann segir fólk í ferðaþjónustu ýmsu vant. „Fólk í ferðaþjónustu er almennt vant því á Íslandi að þurfa að takast á við ýmsar sveiflur, hvort sem það eru sveiflur gjaldmiðilsins, náttúrusveiflur, veðrið, alls konar hlutir sem gera það að verkum að ferðaþjónusturekstur á Íslandi, hann siglir ekki lygnan sjó. Þess vegna tekur fólk þetta í fangið, en heldur hökunni hátt uppi, tekur þetta á kassann og reynir að berjast áfram. En því er ekki að neita að það eru töluvert erfiðari rekstraraðstæður núna heldur en voru kannski fyrir þremur, fjórum, fimm árum,“ segir Jóhannes.
Hann nefnir í því samhengi að allur kostnaður hafi aukist á undanförnum árum og gengið hafi auk þess ekki verið hagstætt. Tekjurnar hafi því dregist saman. „Í því umhverfi er mjög erfitt að fá svona högg ofan á. Við höfum töluverðar áhyggjur af því.“
Nánar er rætt við Jóhannes í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.