\"Þangað til við fáum alvöru gjaldmiðil þurfum við pólitíska forystu um að breyta kerfinu,\" skrifar Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar í Fréttablaðinu í dag og segir þar að ekki dugi að bíða eftir evrunni, kerfisbreytingar séu það aðkallandi.
\"Vextir eru hér of háir enda fjármálakerfið of dýrt,\" skrifar hann áfram og telur nauðsyn á því að brjóta upp fákeppni á bankamarkaði, aðgreina fjárfestingar og viðskiptabanka og kveðja séríslenskar lausnir eins og verðtryggingu neytendalána: \"Breytingar á bankakerfinu eru nefnilega stærsta verkefni stjórnmálanna hér á landi, því þó Íslandi vegni blessunarlega vel geta ytri skilyrði breyst hratt og kreppur koma aftur og aftur,\" skrifar Helgi.
Hann óttast að lærdómurinn af hruninu risti grunnt, kerfið afneiti orsökum þess og sé á fullri ferð við að endurreisa sama fjármálakerfi og hafi fallið 2008. Allt sé við það sama - og sæki í sama farið: \"Það er sami veiki gjaldmiðillinn, sama vonda verðtryggingin, sömu okurvextirnir og bráðum líka myntkröfulánin,\" skrifar Helgi og bendir á vaxandi spillingu og þenslumerki sem sjáist hvarvetna: \"Sama stýrivaxtapólitík heldur uppi óhóflegum kostnaði fyrirtækja og heimila og laðar að erlenda spákaupmenn aftur til landsins. Grátbrostleg fullkomnun yrði svo ef sömu hóparnir eignuðust sömu bankana aftur.\"
Hann segir þessa þróun vera í anda þeirra sem telji að Ísland hafi orðið fórnarlamb alþjóðlegrar kreppu, hér hefði allt reddast ef ekki hefðu verið útlöndin. Hér tali sérhagsmunaöflin sem fyrr sem þrífist á hæsta raunvaxtastigu í okkar heimshluta \"og vilja það kerfi áfram óbreytt.\"